Femínístar vilja taka til inní Héraðsdómi Reykjavíkur

Eftir vel lukkað afmælis Hitt á Thorvaldsen í gærkvöld röltu femínístar yfir í Héraðsdóm þar sem þeir kröfðust þess að tekið verði til að innan í Héraðsdómi Reykjavíkur áður en tekið verður til við að gera upp húsið að utan.

 

 

 

 


mbl.is Mótmæltu vægum dómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS 5 ÁRA

Í dag kl 20.00 verður haldið afmælis HITT í tilefni af fimm ára afmæli Femínistafélags Íslands.

Hittið verður á Thorvaldsen.

 


Í fréttum er þetta helst:

Síðastliðinn laugardagur var 8.mars, alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Minna fór fyrir deginum en undanfarin ár þar sem hann lenti á laugardegi þetta árið. Fiðrildaviku UNIFEM lauk þó á þessum degi, en fréttir herma að vikan hafi gengið vonum framar.  Femínistafréttir mæla með örmyndum á heimasíðu UNIFEM - www.unifem.is 

Fljótlega fara að renna hér inn fleiri myndbrot af því sem við sáum og upplifðum í New York. Þar sem við erum alþjóðleg fréttastofa munum við leitast eftir því að sem flestir skilji myndbrotin.

Femínistafréttir hvetja alla til þess að hafa samband við fréttastofuna ef þið lumið á fréttum sem mögulega hafa farið framhjá stöðinni.

Kærar kveðjur

Ritstjórnin


Fréttastofunni var að berast fréttatilkynning!

Alþjóðlegu femínistafréttastofu Íslands var að berast eftirfarandi fréttatilkynning:

"Femínistafélag Háskóla Íslands er félag stúdenta og starfsfólks Háskólans
sem aðhyllast stefnu femínisma.  Félagið var stofnað í lok október 2007 í
þeim tilgangi að upplýsa stúdenta og samfélagið um femínisma með því að
fjalla um hann á fræðilegum grundvelli.

Femínistafélag Háskóla Íslands fékk útgáfustyrk frá Stúdentasjóði og styrk
frá Félagsstofnun stúdenta fyrir útgáfu á plakötum en tilgangur þeirra er
að fræða stúdenta um feminisma og vekja athygli á félaginu.  Á miðvikudegi
fyrir tæpum tveim vikum voru plakötin hengd upp í flestum byggingum
Háskólans.

Þrenns konar plaköt hafa verið gerð með þessum skilaboðum:
-Femínismi er hugmyndin um félagslegt, pólítískt, og efnahagslegt
jafnrétti kynjanna.
-Er í tísku að hata femínista?
-Konur eru tæp 63% af nemendum í grunnnámi við Háskóla Íslands en námsval
er enn mjög kynbundið
o Af 664 nemendum í grunnnámi við verkfræðideild Háskóla Íslands eru
aðeins 28% konur eða 185 konur
o Af 378 nemendum við hjúkrunafræðideild Háskóla Íslands eru aðeins 3%
karlar eða 12 karlar.
o Af 1619 nemendum í félagsvísindadeild Háskóla Íslands eru aðeins 24%
karlar eða 389 karlar
(Þessar tölur eru síðan 28. Janúar 2008, fengnar frá Hreini Pálssyni,
prófstjóra HÍ og samþykktar af jafnréttisfulltrúa HÍ, Arnari Gíslasyni).

Síðan plakötin hafa verið hengd upp hafa stúdentar brugðist við á ýmsan
hátt: - Í Lögbergi, byggingu laganema, og Gimli, nýbyggingu Háskólans,
voru plakötin (12 stykki) tekin niður af stúdentum tveimur dögum eftir að
þau voru hengd upp.
- Í Árnagarði, byggingu hugvísindadeildar, og VR II, byggingu
verkfræðinema er búið að krota ýmislegt óviðeigandi á plakötin (Sjá myndir).

Stjórn Femínistafélags Háskóla Íslands finnst sorglegt að stúdentar við
Háskóla Íslands (fullorðið fólk) hagi sér svona, en þessi hegðun sýnir það
og sannar að gríðarleg þörf er á félaginu."

Á heimasíðu okkar www.femstudent.blogspot.com má sjá myndir með dæmum um þau
viðbrögð sem plakötin fengu. Í VRII og Árnagarði má svo sjá fleiri dæmi.


Bestu kveðjur
Stjórn Femínistafélags Háskóla Íslands

andfem-2-3


Utanríkisráðherra (hmm... herra?? Skrýtið!) ávarpaði fundinn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra ávarpaði 52. fund kvennanefndar Sameinuðuþjóðanna. Orð Ingibjargar voru hnitmiðuð og skýr. Hún lagði áherslu á reynslu íslenskrar kvenna og setti hana í samhengi við sögu og stöðu Íslands í dag.

 


Finnski jafnréttisráðherrann

Femínistafréttir tóku púlsinn á finnska jafnréttisráðherranum.


Femínistafréttir, New York og Ban Kí Moon

Femínistafréttastofan hefur verið að færa út kvíarnar og gegnir nú ekki bara hlutverki fréttastofu á Íslandi heldur sinnir fréttastofan alþjóðlegum femínistafréttum. Fréttastofan er stödd í New York á 52.fundi Kvennanefndar Sameinuðuþjóðanna og er þetta helst í fréttum;

Háværir femínistar vilja vita.....


Gullið!!!

Gullið fer í loftið í Janúar. Endilega kíkið á kynningu:

 

Bestu kveðjur Besti stjórnmálaskýrandi Íslands


2. þáttur


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband